Ísland Group

Hvenær eigum við að fá góðar fréttir af ástandinu á Íslandinu GAMLA og góða?

Ég verð að viðurkenna að mér finnst óskiljanlegt allt þetta tal um NÝJA Ísland og nýja banka. Við, stoltir Íslendingar  byggjum á gömlum grunni. Við höfum komið okkur áfram í gegnum tíðina á þessum gamla grunni og ættum að halda okkur við hann. Eða á kannski að breyta nafni landsins í Ísland Group? Erum við ekki búin að fá nóg af svoleiðis vitleysu?

Það er tímabært að við fáum að vita hvað stjórnvöld eru að gera. Þó það sé  virðingarvert að búið sé að ákveða að minnka bruðlið í utanríkisráðuneytinu og jafnvel á fleiri stöðum þá finnst mér það ekki endilega vera það sem ríkisstjórnin á að vera að eyða kröftum sínum í. Það ætti að duga að senda minnisblað til stofnana um að spara umtalsvert og ríkisstjórnin ætti að beina kröftum sínum eingöngu að tvennu: upplýsa þjóðina um hvað er verið að gera og finna þá peninga sem vantar. Hvernig væri nú að ráða sér til fulltingis einhverja góða menn og konur sem ekki hafa verið tengd bönkunum til aðstoðar? (og að sjálfsögðu íslenska, við verðum að minnka atvinnuleysið).

Og Geir þú bara verður að fara að fylgjast með því sem er að gerast. Þú ættir að vera sá sem er með á hreinu hvenær á að taka umsóknina okkar fyrir hjá IMF  og fá skýringar á því hvers vegna er alltaf verið að fresta þessu.  

Kvíðin og reiðin í þjóðfélaginu eykst með hverjum deginum sem líður. Áhrifin sem það hefur á landann geta verið gífurleg og langvarandi. Við verðum að reyna  að láta ekki þessar tilfinningar taka af okkur völdin þannig að við getum ekki hugsað skýrt og unnið að því sem við eigum að vera að vinna að. Óvissa eykur kvíða, óvissa eykur reiði. Við verðum að fá að vita hvernig staðan okkar verður í framtíðinni. Við getum ekki beðið eftir því lengur. Eigum við næga fjármuni til að stækka geðdeildirnar þannig að þær rúmi stóran hluta þjóðarinnar?

Áhrif tilfinninganna okkar geta verið þau að við hættum að virka. Við eigum erfitt með að mæta í vinnuna, þeir sem eru það heppnir að hafa vinnu. Hæfni okkar til að hugsa um fjölskylduna okkar, elda, þrífa, þvo og kaupa í matinn, skerðist. Við eigum erfitt með að fara út á meðal fólks því það er erfitt að þurfa að ræða aðstæður sínar við aðra sem kannski ekki eru í eins slæmum málum.   (Meira um  áhrif tilfinninganna með því að smella á myndina hér til hliðar).

Við þurfum að auka samkenndina, við þurfum að standa saman, við þurfum að skilja að vonandi eru allir að reyna að gera sitt besta, þó svo okkur finnist það ekki nógu gott. Þeir sem ekki treysta sér til að gera sitt besta með hag allrar þjóðarinnar í huga eiga að víkja og hleypa þeim að sem tilbúnir eru í verkefnið. Nú skipta flokkar ekki máli, það er í raun aðeins eitt málefni í gangi. Koma fjármálum þjóðarinnar í víðasta samhengi í viðunandi horf. Þegar það er komið þá geta menn haldið áfram að rífast um flokkapólitík.

Og meðan við vitum ekki hverjir eru sökudólgarnir, þá megum við ekki berja hvert á öðru.

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

Farið sparlega með gómsæt íslensk matvæli.....þau á að borða með bros á vör ;)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband